2
.
June
2026

Keeps hlaut styrk frá Vinnumálastofnun - Atvinnumál kvenna

Erna Kristín Blöndal, ráðuneytisstjóri félags- og húsnæðismálaráðuneytisins og Guðrún Hildur Ragnarsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Keeps - ljósmyndari Silla Páls

Í maí var styrkjum til atvinnumála kvenna úthlutað við hátíðlega athöfn í húsnæði Vinnumálastofnunar. Að þessu sinni bárust 239 umsóknir um fjölbreytt verkefni og var alls 25 styrkjum úthlutað að upphæð 38.000.000 til fjölbreyttra verkefna hvaðanæva af landinu. 32.600.000 krónum var veitt til ýmissa verkefna tengdum vöruþróunar, markaðssetningar og launakostnaði og 5.400.000 krónum til gerðar viðskiptaáætlana.

Guðrún Hildur Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri og stofnandi Keeps, hlaut næsthæsta styrkinn að upphæð kr. 3.000.000 til vöruþróunar fyrir verkefnið Markaðstól fyrir afþreyingu. Verkefnið snýst um þróun á Keeps, sem er sjálfvirkur SaaS-vettvangur fyrir ferða- og afþreyingaraðila sem þurfa að halda söluefni sínu til staðar á mörgum dreifileiðum. Keeps býður upp á eitt sameiginlegt, lokað safn fyrir myndir, myndbönd, lýsingar og lykilupplýsingar um ferðir, og dreifir því efni til bókunarkerfa og beinna samskipta við viðskiptavini.  

Keeps er í eignasafni Nýsköpunarsjóðsins Kríu en fyrsta aðkoma sjóðsins að Keeps var árið 2023 í gegnum átakið Frumsjóður 2023.

Við óskum Guðrúnu sem og öllum styrkhöfum innilega til hamingju með styrk sína og hlökkum til að fylgjast með framvindu verkefnanna.

Lista yfir verkefni er hlutu styrk má finna á heimasíðu Atvinnumála kvenna hér

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.