23
.
September
2026

INNSÝN er þema HönnunarMars og DesignTalks 2027

HönnunarMars snýr aftur 7.-11. apríl 2027. Undirbúningurinn er kominn á fullt skrið og hugmyndirnar flæða. Það er sköpunargleði í loftinu. Framundan eru spennandi breytingar og nýjar áherslur.

Innsýn, er þema HönnunarMars og Design Talks 2027, augnablikið þegar það sem áður var falið kemur í ljós. Þegar við sjáum meira en það sem blasir við og förum að skilja það sem býr að baki. Hugmyndirnar, tilraunirnar, mistökin og óvæntu uppgötvanirnar sem urðu hluti af leiðinni að niðurstöðunni. Líttu nær. Það er meira að sjá.

Snemmskráning og almenn þátttökugjöld

Snemmskráning HönnunarMars verður opin frá 22. september til 27. október. Þeir sem skrá sig á tímabilinu fá lægri þátttökugjöld.

Öllum er frjálst að sækja um þátttöku. Fagráð HönnunarMars, skipað fulltrúum fagfélaganna, Listaháskóla Íslands, Reykjavíkurborgar og hátíðarinnar, fer yfir allar umsóknir.

Sjá nánar frétt frá Hönnunarmiðstöð Íslands

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.