
Matarsóunarforritið Humble hefur hafið starfsemi í Osló og tryggt sér fyrstu samstarfsaðilana á norskum markaði. Þar á meðal er stór handverksbakarískeðja sem þegar er byrjuð að nýta lausnina. Um 50 þúsund manns hafa sótt Humble á Íslandi og yfir 150 sölustaðir hafa tekið þátt í samstarfinu.
Humble kom fyrst inn í eignasafn Nýsköpunarsjóðsins Kríu árið 2023 í gegnum fjárfestingaátakið Frumsjóður 2023. Humble tekur nú sín fyrstu skref í alþjóðlegri útrás. Fyrirtækið hefur þróað stafrænan markaðstorgsvettvang sem gerir bakaríum, veitingastöðum og sérverslunum kleift að selja umframmat á lækkuðu verði í stað þess að láta hann fara til spillis.
Humble hefur vaxið hratt á Íslandi og hyggst nú byggja á þeirri reynslu til að hasla sér völl á norskum markaði.
Fyrstu samstarfsaðilar Humble í Noregi eru þegar byrjaðir að nýta lausnina. Þar á meðal er stór handverksbakarískeðja í Osló sem rekur yfir 20 bakarí, auk annarra fyrirtækja í matvælageiranum.
„Við höfum sýnt fram á það á Íslandi að hægt er að byggja upp öflugan markað þar sem fyrirtæki fá nýjar tekjur af umframvörum og neytendur fá aðgang að góðum mat á hagstæðu verði. Það er stór áfangi að sjá íslenska lausn fara í notkun á nýjum markaði,“ segir Hlynur Rafn Guðmundsson, einn stofnenda Humble.
Undanfarna mánuði hefur fyrirtækið undirbúið útrásina með heimsóknum og fundum hjá fjölmörgum norskum fyrirtækjum. Humble hefur jafnframt stofnað norskt dótturfélag og hafið markaðsstarf í Osló.
Humble leggur áherslu á samstarf við gæðabakarí, veitingastaði og sérverslanir. Í appinu geta neytendur keypt bæði óvænta matarpoka og einstakar vörur, oft með 50–60% afslætti frá upphaflegu verði.
Fyrirtækið hefur einnig þróað stafræna afsláttarmiðalausn sem gerir samstarfsaðilum kleift að bjóða viðskiptavinum afslátt af síðari kaupum á almennu verði. Markmiðið er að skapa ný viðskiptatækifæri samhliða því að draga úr matarsóun.
Noregur er fyrsti erlendi markaður Humble. Fyrirtækið hefur valið Osló sem upphafspunkt og stefnir að því að fjölga samstarfsaðilum og notendum þar áður en starfsemin verður útvíkkuð til annarra norskra borga.
„Það er mikilvægur áfangi fyrir lítið íslenskt sprotafyrirtæki að hefja starfsemi erlendis. Við höfum lagt mikla vinnu í að þróa lausnina á Íslandi og teljum okkur nú hafa góðan grunn til að byggja á. Noregur er fyrsta skrefið og við horfum til þess að Humble geti í framtíðinni nýst á fleiri mörkuðum,“ segir Hlynur.