13
.
November
2026

Hugverkavernd og fjárfestingar í nýsköpun á Íslandi og í alþjóðlegu samhengi

Hugverkastofan býður til ráðstefnu um hugverkavernd og fjárfestingar í nýsköpun á Íslandi og í alþjóðlegu samhengi, í Kaldalóni Hörpu, miðvikudaginn 25. nóvember kl. 9:00-13:00.

Á ráðstefnunni verður fjallað um hvernig hugverkaréttindi skapa verðmæti, móta fjárfestingarákvarðanir og eru grunnur að vexti fyrirtækja og skölun á erlendum mörkuðum. Alþjóðlegir sérfræðingar og fulltrúar íslenskra nýsköpunarfyrirtækja, fjárfesta, fjárfestingasjóða og banka ræða tækifæri og hindranir í fjárfestingum og fjármögnun, þar á meðal veðsetningu hugverkaréttinda.

Ráðstefnan er haldin í tilefni 35 ára afmælis Hugverkastofunnar, í samstarfi við Nýsköpunarsjóðinn Kríu, Arion banka og Evrópsku einkaleyfastofuna (EPO).

Fundarstjóri: Katrín Júlíusdóttir, fyrrv. ráðherra og ráðgjafi

Öll velkomin

Ráðstefnan verður haldin á íslensku, fyrir utan erindi erlendra fyrirlesara, en boðið verður upp á þýðingu á ensku.

SKRÁNING

Dagskrá

  • 8:30 Morgunverður
  • 9:00 Setning
    • Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar
  • 9:05 Ávarp
    • Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra
  • 9:10 Nellie Simon, framkvæmdastjóri stoðþjónustu hjá Evrópsku einkaleyfastofunni (EPO)
    • From patents to scale-up: the EPO’s Financing Innovation programme
  • 9:30 Björn Jónsson, meðstofnandi og framkvæmdastjóri rekstrar, Hefring Marine
    • Mikilvægi einkaleyfa fyrir skölun íslenskra nýsköpunarfyrirtækja á erlendum markaði
  • 9:45 Bjarney Harðardóttir, eigandi og forstjóri vörumerkis, 66°N
    • Hvernig vörumerki og hönnun skapa verðmæti á alþjóðlegum markaði
  • 10:00 Benedikt Skúlason, stofnandi og forstjóri, LAUF Cycles
    • Reynsla LAUF af því að sækja íslenska fjármögnun með veði í hugverkaréttindum
  • 10:15 Kaffihlé
  • 10:45 André Rocha, framkvæmdastjóri rannsókna og þróunar, Embla Medical
    • Innovation and IP as a growth driver in the medical industry
  • 11:00 Helga Sigurrós Valgeirsdóttir, forstöðumaður hjá Arion banka
    • Fjármögnun nýsköpunarfyrirtækja
  • 11:15 Sölvi Þrastarson, leiðtogi tækniteymis, Treble Technologies
    • Einkaleyfi sem grunnur að fjármögnun og alþjóðlegu samstarfi
  • 11:30 Pallborð: Hugverkaréttindi og fjárfestingar
    • Helga Sigurrós Valgeirsdóttir, forstöðumaður Arion banka
    • Björn Jónsson, meðstofnandi og framkvæmdastjóri rekstrar, Hefring Marine
    • Óskar Fannar Vilmundarson, fjárfestingastjóri, Brunnur Ventures
  • 12:00 Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar
    • Samantekt og fundarslit
  • 12:10 Léttur hádegisverður

SKRÁNING

‍

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.