27
.
May
2026

Hefring Marine tilnefnt til Nýsköpunarverðlauna Norðurlandanna 2026

Íslenski hópurinn á verðlaunaafhendingunni í Osló: Eiríkur Sigurðsson, samskiptastjóri Hugverkastofunnar; Björn Jónsson, stjórnarformaður og meðstofnandi Hefring Marine, Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar og Edda Sif Pind Aradóttir, forstjóri Carbfix

Hefring Marine var tilnefnt fyrir Íslands hönd til Nýsköpunarverðlauna Norðurlandanna 2026, sem afhent voru við hátíðlega athöfn í Osló í síðustu viku. Finnska fyrirtækið Weeefiner hlaut Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna í ár fyrir einkaleyfisvarða tækni til að hreinsa málma og verðmæt steinefni úr iðnaðaraffalli. Verðlaunin eru veitt fyrirtækjum sem skara fram úr í nýsköpun og hafa byggt upp verðmæti með markvissri þróun hugverka og tækni.

Elmeri Lahtinen, meðstofnandi og tæknistjóri Weeefiner, tók á móti verðlaununum fyrir hönd fyrirtækisins á verðlaunaathöfn í Osló. Weeefiner stuðlar að hringrásarhagkerfi með því að breyta úrgangi í verðmæta auðlind. Hún byggir á þrívíddarprentun með sértækum bindiefnum og gerir kleift að hreinsa uppleysta málma og steinefni í mjög lágum styrk úr iðnaðaraffalli á hagkvæman hátt. Með notkun tækninnar er nú mögulegt að hreinsa iðnaðaraffall og endurvinna dýrmæt hráefni í iðnaði þar sem slíkt var áður mjög torvelt og dýrt, t.d. í námuvinnslu, málmiðnaði, efnaiðnaði og í orkugeiranum.

Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna og Ísland

Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna voru sett á fót árið 2025 af hugverkastofum Norðurlandanna til að vekja athygli á mikilvægi nýsköpunar og hugverkaréttar fyrir sjálfbæra þróun atvinnulífs og samfélags.

Hefring Marine var tilnefnt til verðlaunanna fyrir Íslands hönd og Björn Jónsson, stjórnarformaður og meðstofnandi fyrirtækins kynnti á viðburðinum í Osló snjallsiglingakerfi fyrirtækisins sem nýtir gervigreind  og gögn frá ýmsum skynjurum og mælitækjum um borð í bátum og skipum til að leiðbeina skipsstjórnendum og flotastjórum um ýmsa þætti sem varða öryggi, eldsneytisnýtingu, viðhald og rekstur skipa og báta.

Á viðburðinum kynnti Edda Sif Pind Aradóttir, forstjóri Carbfix, einnig einkaleyfisvarða tækni Carbfix til að binda koltvísýring í bergi og Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar tók þátt í pallborði þar sem rætt var hvað einkenni norræna nýsköpun og hvernig megi efla hana til framtíðar.

„Við hjá Hugverkastofunni erum afskaplega ánægð með þetta tækifæri til að kynna og styðja við framúrskarandi íslensk nýsköpunarfyrirtæki  á samnorrænum vettvangi. Norræn nýsköpun er í fremstu röð þegar kemur lausnum sem hafa raunveruleg áhrif til að auka sjálfbærni á heimsvísu og samstarf hugverkastofa Norðurlandanna um þessi verðlaun undirstrikar hversu mikilvægt er að tengja saman þekkingu, nýsköpun og vernd hugverka yfir landamæri," segir Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar.

Um Hefring

Hefring Marine var stofnað árið 2018 og kom inn í eignasafn Nýsköpunarsjóðsins Kríu árið 2019. Hefring ehf. var stofnað til að þróa leiðbeinandi siglingakerfi, Hefring Marine, fyrir báta og smærri skip. Leiðbeinandi hluti kerfisins, HM Captain, er hannaður þannig að sigling báts byggi á leiðbeinandi hámarkshraða sem tekur tillit til sjó- og veðurlags í rauntíma á gagnvirkan hátt. Með því að fylgja leiðbeinandi hámarkshraða getur skipstjóri dregið verulega úr líkum á slysum sem og viðhaldskostnaði sem hlýst getur af ölduhöggum vegna álags sem þau valda á bát og búnað. Upplýsingum sem safnað er á meðan á siglingu stendur, svo sem raunhraða, leiðbeinandi hámarkshraða, fjölda og mæligildi ölduhögga yfir hættumörkum ásamt upplýsingum um veður eru svo vistaðar í hinum hluta kerfisins, flotastjórnarkerfinu HM Admin. Karl Birgir Björnsson, Magnús Þór Jónsson og Björn Jónsson stofnuðu Hefring ehf. en bakgrunnur þeirra er meðal annars úr rannsóknum í verkfræði, hönnun, sölu- og markaðssetningu á bátum á alþjóðlegum markaði.

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.