26
.
June
2025

Hefring á sýningunni Autonomous Ship Expo

Karl Birgir Björnsson, framkvæmdastjóri og meðstofnandi, Hefring með erindi á Autonomous Ship Expo

Hefring ehf. tekur nú þátt í sýningunni Autonomous Ship Expo í RAI Amsterdam sem stendur yfir 24-26. júní. Auk þess að vera með sýningarbás til að kynna siglingakerfið, Hefring Marine, þá hélt framkvæmdastjórinn og meðstofnandinn, Karl Birgir Björnsson, erindi um Hefring og hvernig IMAS kerfið getur hjálpað til við að móta framtíð sjálfvirkra siglinga.

Hefring var stofnað árið 2018 og var fyrsta aðkoma Nýsköpunarsjóðs að félaginu árið 2019. Fyrirtækið þróar leiðbeinandi siglingakerfi, Hefring Marine, fyrir báta og smærri skip. Leiðbeinandi hluti kerfisins, HM Captain, er hannaður þannig að sigling báts byggi á leiðbeinandi hámarkshraða með tilliti til sjó- og veðurlags í rauntíma á gagnvirkan hátt. Með því að fylgja leiðbeinandi hámarkshraða getur skipstjóri dregið verulega úr líkum á slysum sem og viðhaldskostnaði sem hlýst getur af ölduhöggum vegna álags. Með notkun Hefring Marine er hægt að minnka eldsneytis- og kolefnistlosun um allt að 25%.

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.