13
.
May
2022

Haf vítamín valið fyrirtæki ársins 2022 í Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla

Mynd frá mbl.is

Fyrirtækið HAF vítamín, sem er í eigu sex nemenda við Menntaskólann við Sund, þeirra;  Sigurðar Einarssonar, Ása Benjamínssonar, Magnúsar Más Gunnlaugssonar, Dags Steins Sveinbjörnssonar, Jóns Jökulls Sigurjónssonar og Rúnars Inga Eysteinssonar var valið fyrirtæki ársins 2022 í samkeppni Ungra frumkvöðla, Junior Achievement á Íslandi. Uppskeruhátíðin fór fram í höfuðstöðvum Arion banka föstudaginn 29. apríl. Mun HAF vítamín keppa fyrir hönd Íslands, í Evrópukeppni Ungra frumkvöðla sem fram fer í Tallin, Eistlandi dagana 12. – 14. júlí 2022. Um 4.500.000 nemenda hófu keppni í 40 Evrópulöndum og verður eitt lið valið frá hverju landi til að keppa um „Junior Achievement Company of the Year – GEN_E 2022“

35 fyrirtæki frá 14 framhaldsskólum, voru valin úr hópi 124 fyrirtækja, til að taka þátt í  úrslitum Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla 2022.

Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir for­stöðumaður sam­keppn­is­hæfn­is­sviðs Sam­taka at­vinnu­lífs­ins, stjórnarformaður Ungra frumkvöðla – JA Iceland veittu eftirfarandi verðlaun:

  • Fyrirtæki ársins 2022: Haf vítamín  – Menntaskólinn við Sund
  • Fyrirtæki ársins – 2. sæti: DOZE – Verslunarskóli Íslands
  • Fyrirtæki ársins – 3. sæti: Pósters – Verslunarskóli Íslands
  • Mesta nýsköpunin: Zomnium – Verslunarskóli Íslands
  • Besta fjármálalausnin: Strokkur – Fjölbrautaskólinn við Ármúla
  • Besti Sjó-Bissnessinn: Lóna – Verslunarskóli Íslands
  • Samfélagsleg nýsköpun:  Yfir fjallið – Borgarholtsskóli
  • Besta hönnunin: Lesspenna – Menntaskólinn við Hamrahlíð
  • Besta tæknilausnin: Flutningstorg – Verslunarskóli Íslands
  • Umhverfisvænasta lausnin: Rás – Verslunarskóli Íslands
  • Besta matvælafyrirtækið: MAKAJ – Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
  • Besta „deililausnin: Fataport – Verslunarskóli Íslands
  • Fallegasti sölubásinn: Esja skart – Verslunarskóli Íslands

Einnig fékk vinningsfyrirtækið HAF vítamín 250.000 kr. styrk frá Nýsköpunarsjóði til að vinna að hugmynd sinni.

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.