
Nýverið birti Morgunblaðið viðtal við Tristan Elizabeth Gribbin, stofnanda og framkvæmdastjóra Flow, um nýja samning sem þau hafa gert við bandaríska fyrirtækið USVetServe, útrás til Bandaríkjanna og fleira. Flow var stofnað árið 2016 og kom inn í eignasafn Nýsköpunarsjóðsins Kríu árið 2021.
Með samkomulaginu sem var undirritað í haust opnast Flow leið inn á stóran markað í Bandaríkjunum þar sem sýndarveruleiki og önnur stafræn tækni eru í vaxandi mæli nýtt til að styðja við heilsu og vellíðan fyrrverandi hermanna.
„Við höfum þróað stafræna lausn þar sem íslensk náttúra, hugleiðsla, tónlist og sýndarveruleiki eru nýtt til að styðja við andlega vellíðan. Flow er þó miklu meira en sýndarveruleiki. Sama efni er hægt að nota í sýndarveruleikagleraugum, síma, spjaldtölvu, tölvu eða sjónvarpi og þannig getur Flow fylgt einstaklingnum bæði innan heilbrigðisstofnunar og heima. Það skiptir máli vegna þess að heilbrigðisþjónustan hættir ekki þegar einstaklingurinn tekur af sér gleraugun,“ segir Tristan og leyfir blaðamanni Morgunblaðsins að upplifa tæknina með því að setja upp sýndarveruleikagleraugu og heyrnartól. Er þá eins og maður sé kominn í íslenska náttúru og gleymist þá annað á meðan.
„Við höfum á undanförnum árum lagt aukna áherslu á heilbrigðisþjónustu,“ segir Tristan. „Nýr dreifingarsamningur við USVetServe styður sókn Flow á Bandaríkjamarkað. Fyrirtækinu er stýrt af Don Lee, stofnanda og framkvæmdastjóra fyrirtækisins, sem hefur mikla reynslu af því að koma tæknilausnum inn í bandaríska alríkiskerfið. USVetServe annast sölu og dreifingu en Flow leggur til tæknina og efnið. Samningurinn opnar okkur þannig leið inn á markað sem annars getur verið mjög flókinn fyrir lítið íslenskt fyrirtæki að komast inn á,“ segir Tristan en Flow hafi jafnframt átt í viðræðum við fulltrúa bandarísku uppgjafahermannastofnunarinnar, Department of Veterans Affairs (VA), um mögulegt samstarf.
Að sögn Tristan er VA langt komið í notkun sýndarveruleika í heilbrigðisþjónustu og eru hugleiðsla, slökun og streitustjórnun meðal þess sem tæknin er notuð við til að styðja við heilsu og vellíðan fyrrverandi hermanna.
„Þetta er ekki lengur lítil tilraun með sýndarveruleika á einni deild. VA hefur byggt upp starf á þessu sviði á rúmlega 90 sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum og innan VA er faglegt net með yfir 3.000 meðlimum sem tengjast þróun og notkun tækninnar. Þar hafa verið þróaðar klínískar leiðbeiningar, þjálfun og jafnvel verklag til að afhenda uppgjafahermönnum sýndarveruleikagleraugu til notkunar heima. Fyrir Flow þýðir þetta að við þurfum ekki að byrja á því að sannfæra VA um að sýndarveruleiki geti átt erindi í heilbrigðisþjónustu. Innviðirnir eru þegar að verða til. Tækifærið okkar er að koma með íslenskt efni og okkar nálgun inn í þetta vaxandi kerfi,“ segir Tristan.
Hún segir samninginn við USVetServe mikilvægan áfanga í sögu Flow. Að baki fyrirtækinu stendur teymi undir hennar stjórn, meðal annars Þóra Björk Elvarsdóttir fjármálastjóri og Stefán Árni Þorgeirsson, listrænn stjórnandi Flow. Fyrirtækið hefur á undanförnum árum lagt aukna áherslu á Bandaríkjamarkað. Í september 2025 kynnti Tristan Flow í Cambridge Innovation Center (CIC) í Cambridge í Massachusetts, í boði Íslandsstofu, og í janúar á þessu ári kom hún fram á MIT Reality Hack við Tækniháskóla Massachusetts (MIT).
Tristan er fædd og uppalin í Norður-Kaliforníu í Bandaríkjunum en áhugi hennar á hugleiðslu varð að alvöru eftir að hún flutti til Íslands. Um aldamótin sótti hún níu daga hugleiðslunámskeið í Skálholti sem hún segir hafa haft djúpstæð áhrif á sig.
„Ég kom til baka breytt kona. Þegar ég kom heim leið mér eins og tígrisdýri. Ég var svo sterk,“ segir Tristan, sem hefur stundað hugleiðslu síðan.
Hvað kom til að þú stofnaðir Flow?
„Árið 2015 fékk ég þá hugmynd að sameina hugleiðslu og nýja tækni en vissi þá ekki að sýndarveruleiki myndi gegna svo mikilvægu hlutverki. Ég fór með hugmyndina inn í Startup Reykjavík ásamt litlu teymi og þar hófst þróun Flow. Í upphafi sá ég frekar fyrir mér snjallsímaforrit en síðan opnaðist þessi nýi heimur sýndarveruleikans,“ segir Tristan.
Tristan kynntist möguleikum sýndarveruleikans betur þegar hún tók þátt í verkefni íslenska fyrirtækisins Sólfars fyrir Smithsonian-safnið í Washington. Þar var hún rödd japanska fjallgöngugarpsins Junko Tabei, fyrstu konunnar sem náði tindi Everest, í sýndarveruleikaupplifun sem færir notandann upp á fjallið. Þar fór Tristan að sjá hvernig tæknin gæti skapað sterka tilfinningu fyrir því að vera staddur á öðrum stað.
Árið 2022 varð síðan ákveðinn vendipunktur þegar Tristan sótti alþjóðlega ráðstefnu um sýndarveruleika í heilbrigðisþjónustu í Lissabon. Þar kynntist hún Anne Lord Bailey, framkvæmdastjóra Strategic Initiatives Lab hjá Department of Veterans Affairs (VA), sem hefur verið í fararbroddi við innleiðingu sýndarveruleika innan stofnunarinnar.
„Þarna fór ég að sjá miklu skýrar hvernig Flow gæti átt heima í heilbrigðisþjónustu,“ segir Tristan. Í kjölfarið kynntist hún Jessicu Benson, stofnanda Immersive Care, sem síðar kynnti hana fyrir Don Lee. Þau kynni hafa nú leitt til dreifingarsamnings Flow við USVetServe.
Þurfið þið að flytja starfsemi Flow til Bandaríkjanna til að fylgja þessu eftir?
„Nei, Flow verður áfram íslenskt fyrirtæki. Við höfum byggt upp dreifikerfi og getum markaðssett og selt lausnina í Bandaríkjunum héðan frá Reykjavík,“ segir Tristan.
Auðveldar samningurinn við USVetServe ykkur að finna fleiri samstarfsaðila?
„Já. Við höfum unnið lengi að þróun Flow og erum nú að uppskera árangur þeirrar vinnu. Það skiptir miklu máli að við förum ekki inn á Bandaríkjamarkað aðeins með hugmynd, heldur með reynslu úr íslenskri heilbrigðisþjónustu. Undanfarin þrjú ár höfum við unnið með blóð- og krabbameinslækningadeild Landspítalans. Samstarfið hófst með tveggja ára samningi sem Lífskraftur fjármagnaði og Landspítalinn hefur síðan tekið við og endurnýjað samninginn. Sú reynsla styrkir okkur þegar við ræðum við nýja samstarfsaðila erlendis,“ segir Tristan.
Hvaða þýðingu hefur samningurinn við USVetServe?
„Samningurinn hefur mikla þýðingu fyrir okkur og opnar nýja möguleika í Bandaríkjunum. Við vinnum nú með stuðningi frá Rannís að markaðsþróun Flow fyrir heilbrigðisþjónustu í Bandaríkjunum og er þetta þriðji styrkurinn sem Flow fær frá Rannís. Samningurinn við USVetServe er mikilvægur áfangi í þeirri vegferð,“ segir Tristan.
Fram undan er árlegt hugleiðslunámskeið Flow sem verður haldið á bænum Kleif í Kjós dagana 18.-24. október undir handleiðslu Peters Sterios, stofnanda Manduka™ og alþjóðlegs hugleiðslu- og jógakennara.