17
.
July
2026

Fengu Trump-tolla endurgreidda

Benedikt Skúlason, framkvæmdastjóri Lauf Cycles. Ljósmynd Eyþór Árnason

Lauf Cycles, sem er í eignasafni Nýsköpunarsjóðsins Kríu, hefur fengið að fullu endurgreidda þá innflutningstolla sem fyrirtækið greiddi í Bandaríkjunum og síðar voru dæmdir ólögmætir.

Fjallað var um málið í Viðskiptablaðinu 14. júlí og á Vísi 15. júlí þar sem rætt var við Benedikt Skúlason, framkvæmdastjóra félagsins.

Samkvæmt umfjölluninni barst endurgreiðslan í síðustu viku að loknu formlegu endurgreiðsluferli hjá bandarískum tollyfirvöldum. Erla Skúladóttir, stjórnarformaður Lauf Cycles segir í umfjöllun Viðskiptablaðsins að endurgreiðslan væri afar jákvæð tíðindi sem gefi félaginu aukið svigrúm til áframhaldandi vöruþróunar.

Benedikt Skúlason bendir þó á að endurgreiðslan bæti aðeins hluta þess tjóns sem fyrirtækið varð fyrir vegna tollanna. Lauf Cycles fékk endurgreidda um 660 þúsund bandaríkjadali, eða rúmlega 82 milljónir króna en að hans sögn neyddist fyrirtækið meðal annars til að draga úr birgðum, seinka sendingum og breyta aðfangakeðju sinni vegna óvissunnar sem tollarnir sköpuðu.

Lauf Cycles var stofnað árið 2011 og kom í eignasafn Nýsköpunarsjóðsins Kríu árið 2019.

Við mælum með að lesa umfjöllunina á www.vb.is og áhorfi á viðtalið á Visir.is.

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.