16
.
November
2026

Englafjárfestingar fyrir frumkvöðla

Ertu að byggja upp sprotafyrirtæki og velta fyrir þér hvenær englafjárfestar koma inn í myndina, hvað þeir horfa á og hvernig best er að undirbúa sig fyrir samtal við fjárfesta?

IceBAN og Kría bjóða frumkvöðlum á ókeypis vefnámskeið föstudaginn 27. nóvember milli kl. 11:30 og 13:00 þar sem farið verður yfir englafjárfestingar á hagnýtan og aðgengilegan hátt.

Við skoðum meðal annars:

  • Hvernig fjármögnunarþarfir fyrirtækja breytast eftir því sem þau þróast
  • Hvar englafjárfestar koma inn í fjármögnunarferlið
  • Hvað englar horfa helst til þegar þeir meta fjárfestingartækifæri
  • Hvernig Kría vinnur með englafjárfestum og öðrum fjárfestum
  • Hvernig IceBAN-vettvangurinn virkar fyrir sprotafyrirtæki og hvernig fyrirtæki geta komist í samband við engla

Dagskrá

  • 11:30–11:45 – Opnun: Fjármögnunarferli sprotafyrirtækja
    • Svava Björk Ólafsdóttir, IceBAN
  • 11:45–12:10 – Englafjárfestingar á mannamáli
    • Jón Ingi Bergsteinsson, IceBAN
  • 12:10–12:30 – Kría og samstarf við englafjárfesta
    • Valdimar Halldórsson, Kría
  • 12:30–12:40 – Hvernig virkar IceBAN fyrir sprotafyrirtæki?
    • Svava Björk Ólafsdóttir, IceBAN
  • 12:40–13:00
    • Spurningar og umræður

Við tökum góðan tíma í lokin svo þátttakendur fái svör við því sem brennur helst á þeim varðandi englafjármögnun og næstu skref.

Námskeiðið er ætlað frumkvöðlum og teymum sem vilja skilja betur hvernig englafjárfestingar virka og hvernig þau geta undirbúið sig fyrir fjármögnun.

Þátttaka er ókeypis, en skráning er nauðsynleg.

‍

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.