
Kristinn Aspelund, framkvæmdastjóri Ankeri, hefur verið alltaf haft mikinn áhuga á nýsköpun. Hann stofnaði Ankeri ásamt Leifi Kristjánssyni árið 2016 og fagnar því á þessu ári 10 ára starfsafmæli. Ankeri gerir hugbúnað fyrir flutningaskipafyrirtæki til að halda utan um flota þeirra og gera upp leigukostnað og útblástursheimildir. Við hjá Nýsköpunarsjóðnum lögðum fyrir Kristinn nokkrar laufléttar spurningar til að kynnast honum betur.
Hvaða menntun ertu með?
„Ég er vélaverkfræðingur með MSc gráðu frá GaTech og BSc í véla- og iðnaðarverkfræði frá HÍ.“
Hvenær komstu fyrst að nýsköpun og af hverju?
„Ég hef eiginlega alltaf unnið við nýsköpun. Við Leifur vinur minn og meðstofnandi Ankeri brölluðum ýmislegt í skóla þar með talið búa til vefsíður og selja. En fyrsta alvöru starfið í nýsköpun var sumarstarf árið 1999, styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna þar sem ég vann í tilraunaverksmiðju í Suður Afríku sem vann hráefni fyrir plastframleiðslu úr sykri í stað olíu.“
Hvað varstu að gera áður en þú stofnaðir Ankeri?
„Ég starfaði í Marorku allt frá stofnun félagsins til ársins 2016 þegar við Leifur sögðum báðir upp þar til að stofna Ankeri. Lengst af var ég sölu- og markaðsstjóri hjá Marorku.“
Hvaðan kom hugmyndin um Ankeri og hvernig hefur hún þróast?
„Hún mótast út frá vinnu okkar í Marorku þar sem við sáum misræmi í ákvarðanatöku í flutningaskipaiðnaðinum. Fyrirtæki eins og Marorka voru farin að sitja á miklu magni gagna og upplýsinga sem skipafyrirtækin voru ekki að ná að nýta við stórar ákvarðanatökur eins og við val á skipum fyrir siglingaleiðir.“
Ef þú værir ekki framkvæmdastjóri Ankeri hvað myndirðu vilja gera í lífinu?
„Ég reikna með að ég myndi enda einhvers staðar í alþjóðlegri starfsemi þar sem nýsköpun væri ráðandi.“
Hvaða reynslu nýtir þú mest í því starfi sem þú gegnir í dag?
„Reynslan í sölumálum er einna mikilvægust í því að stækka nýsköpunarfyrirtæki þar sem þetta snýst um að koma vörum í notkun og skapa tekjur. Heimurinn er að breytast hratt þessa dagana, í gerfigreindarheimi er miklvægi þess að hafa hugmyndarflug og reynslu til að spyrja spurninga hvað dýrmætast, til þess nýti ég ábyggilega bara allan reynslubankann.“
Hvaða áhugamál hefurðu?
„Ég hef áhuga á all flestu, ég hef gaman að fylgjast með því sem er að gerast í heiminum hvort sem það sé í alþjóðamálum, tækni, listum eða íþróttum. Ég reyni að forgangsraða að verja tíma með fjölskyldu og vinum.“
Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir?
„Vera í góðum hópi fólks, á bæði við í vinnu og leik.“
En það leiðinlegasta eða mest óþolandi?
„Ég reyni að láta hluti ekki fara í taugarnar á mér en ég á einna erfiðast með óheiðarleika.“
Ef þú gætir sagt eitthvað við þig sem barn hvað myndirðu vilja segja því?
„Ekki hika við að spyrja eða leita hjálpar. Í versta falli er svarið nei og við erum á sama stað og ef ekki er spurt.“