
Dr. Ásta Dís Óladóttir, prófessor í viðskiptafræði við Háskóla Íslands, hefur verið kjörin forseti Viðskiptafræðideildar og tekur við embættinu 1. apríl næstkomandi. Hún tekur við af Margréti Sigrúnu Sigurðardóttur, sem hverfur til starfa sem kennslustjóri Háskóla Íslands.
Ásta Dís hefur undanfarin fimm ár stýrt MBA-náminu við Háskóla Íslands og lagt áherslu á að tengja kennslu markvisst við raunveruleg viðfangsefni í atvinnulífinu. Ásta Dís situr í stjórn Nýsköpunarsjóðsins Kríu.
Þá hefur hún meðal annars komið á starfsþjálfun innan Viðskiptafræðideildar sem nær nú til yfir 70 fyrirtækja og stofnana, þar sem hundruð nemenda hefur tekið þátt og margir fengið draumastarfið í kjölfarið. Ásta Dís hefur ritað fjölda vísindagreina og bóka á sviði stjórnun, jafnréttis og sjávarútvegs og leiðir rannsóknir á jöfnum tækifærum kynja til efnahagslegrar þátttöku. Árið 2025 stofnaði Ásta Dís ásamt fleirum Rannsóknasetur um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi við Háskóla Íslands.
„Viðskiptafræðideild HÍ hefur á að skipa öflugu og reynslumiklu fræðafólki og byggir kennsla á sterkum fræðilegum grunni samhliða nánum tengslum við atvinnulífið,“ kemur fram í tilkynningu frá Háskóla Íslands. Nemendur vinna að raunverkefnum fyrir fyrirtæki, fara í vettvangsheimsóknir og fá aðgang að fjölbreyttum viðfangsefnum sem endurspegla það sem gerist í íslensku viðskiptalífi hverju sinni. Þá taka fjölmargir stjórnendur og sérfræðingar úr atvinnulífinu virkan þátt í kennslu deildarinnar og miðla reynslu sinni til nemenda.“
Deildin á í virku rannsóknasamstarfi við erlenda háskóla og fræðafólk og tengir rannsóknir sínar við viðfangsefni sem skipta atvinnulífið máli.
Í sömu viku og Ásta Dís var kjörin forseti viðskiptafræðideildar HÍ var hún jafnframt útnefnd Háskólakona ársins 2025 af Félagi háskólakvenna.
Valnefnd skipuðu Ásgerður Halldórsdóttir, Guðrún Gunnarsdóttir og Vala Georgsdóttir og var það samdóma niðurstaða valnefndar að útnefna Ástu Dís úr hópi sterkra tilnefninga. Í umsögn nefndarinnar kemur fram að Ásta Dís hafi með störfum sínum sýnt framúrskarandi leiðtogahæfileika og haft veruleg áhrif á tengsl fræða og atvinnulífs á Íslandi. Hún hafi markvisst unnið að uppbyggingu náms og rannsókna, auk þess að skapa ný tækifæri fyrir nemendur og efla samstarf við fyrirtæki og stofnanir.
„Undanfarin fimm ár hefur Ásta Dís stýrt uppbyggingu MBA-náms við Háskóla Íslands og haft frumkvæði að starfsþjálfun innan viðskiptafræðideildar sem nú nær til yfir 70 samstarfsaðila. Á annað hundrað nemenda hefur nýtt sér úrræðið á síðustu árum og margir þeirra fengið starf á sínu sviði í kjölfarið. Þá kemur fram að Ásta Dís sé öflugur fræðimaður og rannsakandi. Hún hefur ritað fjölda vísindagreina og bóka um stjórnun, stefnumótun og þróun sjávarútvegs og fiskeldis. Þá leiðir hún rannsóknir á jöfnum tækifærum kynja til efnahagslegrar þátttöku og ákvarðanatöku í atvinnulífinu. Árið 2025 stofnaði Ásta Dís Rannsóknasetur um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi sem hefur það markmið að efla þekkingu og stuðla að auknu jafnrétti á vinnumarkaði,“ segir m.a. í umsögn valnefndar.
Að lokum kemur fram í umsögn að valnefndar að með starfi sínu hafi Ásta Dís haft áhrif á stefnumótun bæði innan fræðaheims og atvinnulífs og verið öflug fyrirmynd fyrir háskólakonur.