26
.
June
2026

Ársfundur Nýsköpunarsjóðsins Kríu

Logi Már Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og Hrönn Greipsdóttir, forstjóri Nýsköpunarsjóðsins Kríu

Ársfundur Nýsköpunarsjóðsins Kríu (NSK) var haldinn miðvikudaginn 24. júní þar sem ársskýrsla sjóðsins fyrir árið 2025 var kynnt. Fundinn sátu fulltrúar stjórnvalda, samstarfsaðilar sjóðsins, fjárfestar og fleiri gestir úr íslenska nýsköpunarumhverfinu.

Logi Már Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, ávarpaði gesti og ræddi um mikilvægi nýsköpunar fyrir verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. Hann lagði áherslu á mikilvægt hlutverk Nýsköpunarsjóðsins Kríu við að efla aðgengi sprotafyrirtækja að fjármagni og styrkja íslenskt nýsköpunarumhverfi.

Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir stjórnarformaður NSK sagði frá stefnumótunarvinnu og langtímamarkmiðum sjóðsins sem lúta að því að styrkja fjármögnunarumhverfi sprotafyrirtækja.

Hrönn Greipsdóttir, forstjóri NSK, fór yfir starfsemi sjóðsins sem var fyrsta starfsárið eftir sameiningu Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og Kríu -  sprota- og nýsköpunarsjóðs.  Fram kom m.a. að skv. tölfræði sem Framvís, samtök engla og vísisjóða, tekur saman, að nýfjárfestingar í sprotafyrirtækjum hafa dregist saman bæði í fjölda og fjárhæðum síðustu ár. Á sama tíma hefur framboð fjárfestingakosta aukist verulega. Þetta misræmi í framboði og eftirspurn eftir fjárfestingu má skilgreina sem markaðsbrest.

Sjóðafjárfestingar eru mikilvægur þáttur í starfsemi NSK og hefur eftirspurn eftir þeim reynst mikil. Ein stærsta breytingin frá því sem var er að NSK hefur nú einnig heimild til að fjárfesta í erlendum sjóðum. Það hefur aukið möguleika NSK til að styðja við nýsköpun á Íslandi með aðgengi að alþjóðlegu fjármagni, sérþekkingu og öflugu tengslaneti.

Í ársskýrslunni er að finna ársreikning sjóðsins ásamt yfirliti yfir starfsemi á árinu, eignasafn, helstu viðburði og verkefni. Þar kemur fram að beinn sparnaður af því að reka sjóðina nú saman eru 60 m.kr. á ári auk hagræðingar og styrks þess að koma fram sem ein heild.  

Eignasafn sjóðsins er fært á kaupvirði eða markaðsvirði sé það lægra og arðsemi kemur því ekki fram fyrr en við sölu eigna.  Óhjákvæmilegt er því sjóðurinn sé rekinn með tapi nema til komi hagnaður af eignasölu sem er hærri en rekstrarkostnaður og niðurfærsla eignarhluta. Á árinu var fjárfest fyrir 311 m.kr. og hagnaður af sölu eigna var 55 m.kr.    

Eignasafn NSK er annars vegar hlutdeild í sjóðum  2.829 m.kr. og eignarhlutir í félögum 2.086 m.kr.  Að meðtöldum lánveitingum, handbæru fé og óinnkölluðum hlutafjárloforðum eru eignir alls rétt rúmir 9 milljarðar króna.  

Logi Már Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra:

„Nýsköpun snýst um að sjá tækifæri þar sem aðrir sjá áskoranir. Nafn sjóðsins Kría fangar þann anda vel. Krían er áræðin og úrræðagóð; hún ver sitt af festu, leggur í löng ferðalög og aðlagast breyttum aðstæðum þegar á reynir. Það sama á við um nýsköpun. Til að hugmyndir geti orðið að verðmætum þurfa þær skilyrði til að dafna. Þar gegnir Nýsköpunarsjóðurinn Kría mikilvægu hlutverki með því að styðja við þau sem þora að feta nýjar leiðir. Takist okkur vel til mun íslenskt hugvit, útsjónarsemi og hin alkunna íslenska þrjóska halda áfram að skapa ný tækifæri og verðmæti fyrir samfélagið allt.”

Hrönn Greipsdóttir, forstjóri NSK:

„Við erum afar sátt við fyrsta rekstrarár sjóðsins. Í byrjun árs var lögð áhersla á að skilgreina stefnur og setja langtímamarkmið. Í maí komu til starfa tveir  fjárfestingastjórar og þá má segja að starfsemin hafi farið á fullt skrið. Fjárfestingaátakið Frumsjóður 25 tókst afar vel, Heilsu Kría var sett á laggirnar og fjárfest var í fyrsta vísisjóðnum í lok árs svo fátt eitt sé talið. Við erum spennt fyrir framtíðinni og tilbúin til að takast á við þau verkefni sem lenda í skauti Kríu”

Stjórn Nýsköpunarsjóðsins Kríu skipa:

  • Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir, formaður
  • Ásta Dís Óladóttir
  • Guðmundur Halldór Björnsson
  • Róbert Farestveit
  • Sigríður Mogensen

Um NSK

Nýsköpunarsjóðurinn Kría gegnir mikilvægu hlutverki í íslensku nýsköpunarumhverfi með því að stuðla að öflugra fjármögnunarumhverfi fyrir sprotafyrirtæki og hvetja til aukinnar þátttöku einkafjárfesta í uppbyggingu nýrra verðmæta. NSK varð til með sameiningu tveggja sjóða, Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og Kríu -  sprota- og nýsköpunarsjóðs. Í nýjum sameinuðum sjóði er áhersla á að standa vörð um sérstöðu og styrkleika forveranna með tveimur meginflokkum fjárfestinga, beinar fjárfestingar og sjóðafjárfestingar. Eignasafn NSK samanstendur af eignarhlutum í 67 félögum og fjárfestingum í fimm vísisjóðum.

Myndir frá ársfundinum

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.