30
.
June
2026

ArcanaBio sigraði líftæknikeppni í New York

Elisabeth Granhage, Dr. Dominic Suciu, vísindastjóri og meðstofnandi ArcanaBio og Barbara Wennerholm

Íslenska líftæknifyrirtækið ArcanaBio bar nýlega sigur úr býtum í “Nordic Accelerator Life Science 2026” líftæknikeppni, sem haldin er árlega á vegum Sænska viðskiptaráðsins í New York og er stutt af Ernst & Young. Er þetta í fyrsta sinn sem íslenskt líftæknisproti sigrar keppnina.

ArcanaBio keppti þar við nokkur af efnilegustu líf- og heilsutæknifyrirtækjum Norðurlandanna sem stefna á Bandaríkjamarkað þar sem í dómnefnd sátu m.a fulltrúar frá fjárfestingasjóðum í New York. Við verðlaununum tók Dr. Dominic Suciu, vísindastjóri og meðstofnandi ArcanaBio frá Barböru Wennerholm, fyrir hönd Sænska viðskiptaráðsins í New York og Elisabeth Granhage, eiganda hjá Ernst & Young í Stokkhólmi.

Í keppninni kynnti ArcanaBio nýja tækni sem mun gera einstaklingum kleift að greina og fylgjast með mikilvægum heilsufarstengdum próteinum, meðal annars úr munnvatni, með greiningatæki sem notast við nýja ljóstækni- og gervigreind sem ArcanaBio hefur unnið að undanfarin ár.

Tæknin, sem fékk nýlega bandarískt einkaleyfi, leggur grunn að nýrri kynslóð af einstaklingsmiðaðri heilbrigðistækni sem mun gera almennar heilsufarsmælingar heima frá mögulegar, þar sem hægt verður að fylgjast með langtímaheilsu með aðstoð gervigreindar.

Í verðlaun fékk ArcanaBio skrifstofu- og fundaraðstöðu á Manhattan í New York, með aðgangi að alþjóðlegu tengslaneti og ráðgjafaþjónustu Sænska viðskiptaráðsins.

ArcanaBio er eitt af tíu félögum sem voru valin í fjárfestingaátaki sjóðsins Frumsjóður 2023. Meðal annarra fjárfesta í ArcanaBio eru Novo Nordisk, auk íslenskra og bandarískra englafjárfesta. Félagið fékk einnig nýlega um 100 milljónir króna í styrki frá bæði Tækniþróunarsjóði og Eurostars áætlun Evrópusambandsins.

Við óskum öllum hjá ArcanaBio innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur.

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.