3
.
June
2025

Ankeri og Hefring fá styrk frá Tækniþróunarsjóði

Stjórn Tækniþróunarsjóðs samþykkti nýverið að bjóða fulltrúum 69 verkefna sem sóttu um í sjóðinn á vormisseri að ganga til samninga um nýja styrki. Þar á meðal eru tvö félög í eignasafni Nýsköpunarsjóðsins Kríu, Ankeri og Hefring.

Vorúthlutun TÞS 2023

Í boði voru styrktarflokkarnir Fræ/Þróunarfræ, Hagnýt rannsóknarverkefni, Sproti, Vöxtur/Sprettur og markaður. Alls bárust 480 umsóknir og er árangurshlutfall styrktra verkefna sem hlutfall af innsendum umsóknum 14%.

Í þessari úthlutun er styrkveiting til nýrra verkefna 686 milljónir króna en þar sem verkefnin eru til allt að þriggja ára nemur heildarkostnaður vegna þeirra 1.333 milljónum. Sjá nánar hér.

Hefring

Hefring ehf. hlýtur styrk til markaðsþróunar með undirbúningur og ásýnd IMAS í Noregi. Hefring ehf. var stofnað til að þróa leiðbeinandi siglingakerfi, Hefring Marine, fyrir báta og smærri skip. Leiðbeinandi hluti kerfisins, HM Captain, er hannaður þannig að sigling báts byggi á leiðbeinandi hámarkshraða sem tekur tillit til sjó- og veðurlags í rauntíma á gagnvirkan hátt. Hefring kom í eignasafn Nýsköpunarsjóðsins árið 2019.

Ankeri

Ankeri hlýtur styrk fyrir markaðssjón á Asíumarkaði. Ankeri er hugbúnaðarfyrirtæki sem býr til skýjalausn fyrir skipaeigendur og leigjendur flutningaskipa sem gerir þeim kleift að deila á milli sín gögnum. Markmið Ankeri að verða fyrsta fyrirtækið á markaði til að tengja saman hagsmuni eigenda og leigjenda skipa með bættri upplýsingagjöf, betri orkunýtingu og minni útblæstri skipaflotans. Ankeri kom í eignasafn Nýsköpunarsjóðsins árið 2018.

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.