28
.
October
2026

Akthelia vinnur að lyfi sem gæti dregið úr alvarlegum fylgikvillum krabbameinsmeðferðar

Egill Másson, framkvæmdastjóri Akthelia, og Valur Ragnarsson, stjórnarformaður Akthelia. Ljósmynd: Eyþór Árnason

Í dag birti Viðskiptablaðið viðtal við Egil Másson, framkvæmdastjóra Akthelia. Akthelia vinnur að þróun lyfsins AKT-011 sem ætlað er að vernda slímhúð meltingarvegar og draga úr alvarlegum fylgikvillum krabbameinsmeðferðar.  Akthelia kom inn í eignasafn Nýsköpunarsjóðsins Kríu árið 2008 en félagið var stofnað árið 2002.

Egill segir meðal annars í viðtalinu að félagið standi frammi fyrir mikilvægum áfanga í þróun lyfsins. Takist að hefja klínískar rannsóknir á næsta ári muni það breyta starfsemi fyrirtækisins verulega og skapa ný tækifæri til fjármögnunar og samstarfs við alþjóðleg lyfjafyrirtæki.

„Þetta er kannski stærsta stökkið í þroska lyfjaþróunarfyrirtækja. Þegar þau fara yfir í klínískar rannsóknir breytist eðli þeirra mjög mikið. Áhugi annara á fyrirtækjunum breytist og sömuleiðis kröfur reglugerðaryfivalda,“ segir Egill.

Vilja koma í veg fyrir alvarlegar sýkingar

Egill segir að skemmdir á slímhúð meltingarvegarins geti meðal annars leitt til lífshættulegra sýkinga.

„Þegar þú ferð í meðferð með frumudrepandi krabbameinslyfjum ráðast lyfin á frumur sem skipta sér hratt. Það eru auðvitað krabbameinsfrumurnar en einnig aðrar frumur líkamans, meðal annars þekjufrumur í meltingarveginum. Þegar þær skaðast geta myndast sár og þá skapast hætta á að bakteríur berist úr meltingarveginum út í blóðrásina og valdi blóðsýkingu.“

Slímhúðarbólga í meltingarvegi er vel þekktur fylgikvilli krabbameinsmeðferðar. Í alvarlegum tilfellum getur hún leitt til lífshættulegra sýkinga, lengri sjúkrahúsdvalar og þess að fresta þurfi meðferð eða lækka lyfjaskammta.

Egill segir tíðni og alvarleika aukaverkananna vera mjög mismunandi eftir því hvaða krabbameinsmeðferð sjúklingar fá. Í sumum tilfellum geti vandamálin jafnvel fylgt sjúklingum árum saman eftir að meðferð lýkur.

Byggir á íslenskum vísindarannsóknum

AKT-011 á rætur að rekja til rannsókna Guðmundar Hrafns Guðmundssonar, prófessors við Háskóla Íslands, og samstarfsfólks hans, meðal annars við Karolinska Institutet í Svíþjóð. Rannsóknirnar hafa beinst að náttúrulegum ónæmisvörnum líkamans og samspili þeirra við örveruflóru meltingarvegarins.

AKT-011 er ný einkaleyfisvarin sameind sem þróuð hefur verið til að líkja eftir verndandi áhrifum efna sem örverur í meltingarveginum framleiða. Tilgangurinn er að draga úr bólguviðbrögðum og hraða endurnýjun skaddaðrar slímhúðar.

Þurfa 22 milljónir dala í klínískar rannsóknir

Egill segir Akthelia áætla að alls þurfi um 22 milljónir bandaríkjadala, eða sem nemur tæplega 2,7 milljörðum króna, til að fjármagna fyrstu tvo fasa klínísku rannsóknanna. Þar af sé gert ráð fyrir að fyrsti fasinn kosti um sjö milljónir dala og sá næsti um fimmtán milljónir. Félagið hefur þegar tryggt 180 milljóna króna fjármögnun til undirbúnings fyrstu klínísku rannsóknanna og vinnur nú að fjármögnun næstu skrefa. Egill segir félagið hafa átt í samtölum við sérhæfða fjárfestingarsjóði undanfarin tvö til þrjú ár um fjármögnun klínísku rannsóknanna. Viðbrögðin hafa verið jákvæð og einn sjóður hefur lýst yfir áhuga á að leiða fjármögnunina, þótt endanlegir samningar liggi ekki fyrir.

Stefna að leyfissamningi árið 2030

Langtímamarkmið Akthelia er að afla nægilegra klínískra gagna til að semja um lyfið við stórt alþjóðlegt lyfjafyrirtæki. Slíkt félag gæti þá tekið við síðari stigum þróunarinnar og markaðssetningu.

„Markaðstækifærið er af þeirri stærðargráðu að það krefst lyfjafyrirtækis með víðtæka markaðsnálgun og öflugt dreifikerfi. Við stefnum því að því að gera nytjaleyfissamning þegar niðurstöður úr öðrum fasa klínísku rannsóknanna liggja fyrir.“

Samkvæmt núverandi áætlun gæti þeim áfanga verið náð á árunum 2029–2030.

Lesa má viðtalið í heild sinni í Viðskiptablaðinu.

‍

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.