
Lokakeppni Gulleggsins 2026, stærstu og elstu frumkvöðlakeppni Íslands, fór fram í hátíðarsal Grósku 26. febrúar, þar sem tíu metnaðarfull sprotateymi kynntu hugmyndir sínar fyrir þéttsetnum sal og dómnefnd skipaðri fulltrúum bakhjarla keppninnar sem m.a. er Nýsköpunarsjóðurinn Kría og sat Valdimar Halldórsson, fjárfestingastjóri hjá sjóðnum í dómnefnd.
Keppnin er haldin af KLAK – Icelandic Startups og hefur frá árinu 2008 verið mikilvægur stökkpallur fyrir frumkvöðla með verkefni á hugmyndastigi. Fjöldi sprotafyrirtækja sem nú hafa náð langt á innlendum og erlendum markaði stigu sín fyrstu skref á sviði Gulleggsins.
Í ár tók þátt fjölbreyttur hópur teyma sem spannar allt frá líftækni og sjálfbærri orku yfir í stafrænar lausnir og nýjar leiðir til að nýta gögn, tækni og íslenskar auðlindir og samkeppnin var því mikil.
Landsbankinn, aðalbakhjarl Gulleggsins, afhenti vegleg peningaverðlaun til þriggja efstu teymanna í lokakeppninni:
Heiðursegg Gulleggsins 2026 var veitti Hrönn Greipsdóttir, forstjóri Nýsköpunarsjóðsins Kríu og var því veitt fyrirtækinu Lavashow. Hugmyndin á bak við fyrirtækið var meðal þeirra tíu hugmynda sem kepptu um Gulleggið árið 2016. Lavashow hefur á síðustu árum vakið mikla athygli fyrir að umbreyta náttúruöflunum í einstaka upplifun fyrir gesti, byggja upp sterkt vörumerki og skapa verðmæti bæði í ferðaþjónustu og skapandi greinum. Með heiðursegginu er viðurkennt það mikla frumkvöðlastarf, úthald og hugrekki sem liggur að baki því að byggja upp fyrirtæki eins og Lavashow,
Auk peningaverðlauna keppa teymi Gulleggsins um margvísleg aukaverðlaun sem veitt eru af bakhjörlum og samstarfsaðilum keppninnar. Þessi verðlaun fela í sér sérhæfða ráðgjöf, aðstöðu og handleiðslu sem hjálpa teymunum að taka næstu skref í þróun hugmynda sinna.
Gulleggið er opið öllum sem hafa hugmynd og vilja prófa sig áfram í nýsköpun, óháð bakgrunni eða reynslu. Þátttakendur fá fræðslu, handleiðslu og tækifæri til að prófa hugmyndir sínar í krefjandi umhverfi, þar sem áhersla er á að læra hratt, þróa áfram og tengjast öflugu vistkerfi frumkvöðla, fjárfesta og sérfræðinga.
„Teymin í Gullegginu í ár sýna enn og aftur hversu fjölbreytt og öflug nýsköpun er á Íslandi. Hér eru frumkvöðlar að leysa raunveruleg vandamál, skapa ný verðmæti og leggja sitt af mörkum til sjálfbærari framtíðar,“ segir Anna Schalk Sóleyjardóttir, verkefnastjóri Gulleggsins. „Við erum sérstaklega þakklát bakhjörlum Gulleggsins sem gera okkur kleift að styðja teymi áfram – ekki bara með peningaverðlaunum heldur líka með raunverulegri aðkomu að þeirra vegferð“
Með lokakeppni Gulleggsins 2026 er enn einni árangursríkri keppni lokið, en fyrir mörg teymi er þetta aðeins fyrsta skrefið. Næstu mánuði munu þau halda áfram að þróa hugmyndir sínar – með aðstoð stuðningsnetsins sem Gulleggið, KLAK og bakhjarlar keppninnar hafa byggt upp.
Nánari upplýsingar um Gulleggið og þátttöku: Gulleggid.is