18
.
June
2026

30% tekjuvöxtur hjá Ankeri

Kristinn A. Aspelund, forstjóri Ankeri Solutions. Ljósmynd: Eyþór Árnason

Rekstrartekjur hugbúnaðarfyrirtækisins Ankeri Solutions námu 390 milljónum króna á síðasta ári samkvæmt nýbirtum ársreikningi félagsins. Sölutekjur námu 284 milljónum króna og jukust um 30% frá fyrra ári.

Ankeri, sem þróar skýjalausnir fyrir fyrirtæki í gámaskipaflutningum, þjónustar bæði eigendur flutningaskipa og útgerðarfélög sem leigja skip til reksturs. Félagið hefur jafnframt aukið alþjóðlega viðveru sína og opnaði nýverið útibú í Singapúr.

Fram kemur í skýrslu stjórnar að áfram hafi verið fjárfest markvisst í mannauði, vöruþróun og sölu- og markaðsstarfi. Rekstrarkostnaður jókst um 21% á milli ára og nam alls 418 milljónum króna. Laun og verktakagreiðslur voru stærsti kostnaðarliðurinn, eða 83% af heildarkostnaði, og fjölgaði stöðugildum um þrjú á árinu.

Meginþungi kostnaðarins tengdist þróunarstarfi, sem nam tæplega 70% af rekstrarkostnaði. Þróunarkostnaður félagsins var alls 281 milljón króna á árinu 2025, en þar af voru 182 milljónir króna eignfærðar.

EBITDA-afkoma félagsins var neikvæð um tæpar 28 milljónir króna. Að teknu tilliti til eignfærðs þróunarkostnaðar var EBIT-afkoman hins vegar jákvæð um 51 milljón króna. Hagnaður eftir skatta nam 54,4 milljónum króna.

Ankeri Solutions var stofnað árið 2016 og kom Nýsköpunarsjóðurinn Kría fyrst að félaginu árið 2018. Hluthafahópurinn var óbreyttur á árinu. Stærsti eigandi félagsins er vísissjóðurinn Frumtak III með 29% hlut. Framkvæmdastjórinn Kristinn A. Aspelund og Leifur A. Kristjánsson eiga hvor um sig 24% hlut í gegnum félög sín, Aspelund ehf. og Guerrero ehf. Þá á Nýsköpunarsjóðurinn Kría 14% hlut og Brekkubyggð ehf. 9%.

Stjórn félagsins leggur til að hagnaður ársins verði færður á milli ára og að ekki verði greiddur arður til hluthafa.

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.