Mink Campers
Ótroðnar slóðir í léttum sporthýsum
Mink Campers var stofnað árið 2015 í kringum þá hugmynd að brúa bilið á milli hefðbundinnar tjaldútilegu og lúxusferðalaga með hönnun á léttum en sterkum sporthýsum. Fyrsti vagninn kom á markað árið 2017. Fyrir á markaði voru ferðavagnar gjarnan þungir, stórir og erfiðir í drætti, en hönnun Mink Campers lagði áherslu á léttleika, straumlínulögun og einfaldan ferðamáta. Sérstaða vagnanna felst í norrænni hönnun, stórum útsýnisgluggum og uppbyggingu sem gerir þá tilvalda fyrir krefjandi náttúruaðstæður allt árið um kring. Fyrirtækið hefur náð útbreiðslu á alþjóðavettvangi og selur nú vagnana til fjölmargra landa í Evrópu.
minkcampers.com/