14
.
September
2022

Nýsköpunarþing 2022

Nýsköpunarþing 2022 verður haldið þriðjudaginn 20. september í Grósku frá kl. 13:30-15.00.

Yfirskrift þingsins 2022 er:

Hugvitið út! – Hvernig verður hugvit stærsta útflutningsgrein Íslands?

Umfjöllunarefni Nýsköpunarþings hverju sinni tengist rannsóknum, þróun og markaðsmálum. Umræðuefnið er ávallt valið með það í huga að ýta undir skilning manna á samspili vísinda, tækni og þekkingar annars vegar og vöruframleiðslu og markaðsstarfs hins vegar. Nýsköpunarverðlaun Íslands eru veitt á Nýsköpunarþingi.

Dagskrá: 

Ávarp

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

Undirstöður og drifkraftar verðmætasköpunar á grunni hugvits

Dr. Ari Kristinn Jónsson, forstjóri AwareGo

Sjálfbærni og nýsköpun: Verkfæri í sölu- og markaðsstarfi

Guðmundur Óskarsson, framkvæmdastjóri markaðs- og vörustjórnunar Kerecis

Nýsköpun felst í mannauðnum

Elín María Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðssviðs hjá Controlant

Loforðin á bak við markmiðið

Jenný Ruth Hrafnsdóttir, meðstofnandi Crowberry Capital

Nýsköpunarverðlaun Íslands 2021 og 2022

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

Fundarstjóri er Ágúst H. Ingþórsson, forstöðumaður Rannís.

Nýsköpunarþinginu verður streymt. Í lok þingsins er boðið upp á léttar veitingar.

Aðgangur ókeypis – en gestir þurfa að skrá sig og hefur verið opnað fyrir skráningar.

Skrá þátttöku

Nýsköpunarþing er haldið í samstarfi Rannís, Íslandsstofu, Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og Hugverkastofunnar.

Deila frétt
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.