25
.
September
2026

Veiðitækni OptiTog í fimm skipum

Halla Jónsdóttir hjá Optiog

Fiskifréttir birti nýverið grein um nýsköpunarfyrirtækið OptiTog sem hefur vakið athygli fyrir byltingarkenndar lausnir á veiðiaðferðum á rækju og bolfiski sem grundvallast á smölun með stefnumiðuðu ljósi. Optitog var stofnað árið 2014 og var fyrsta aðkoma Nýsköpunarsjóðsins Kríu að félaginu í gegnum fjárfestingaátakið Frumsjóður 2023

Markmið Optitog er að auka aflann, vernda hafsbotninn og draga úr orkunotkun skipa. Nú eru fimm skip í samstarfi við OptiTog um notkun tækninnar.

Halla Jónsdóttir líffræðingur, einn aðstandenda OptiTog, segir þennan áfanga mikilvægan og staðfestingu á því að lausnir OptiTog hafi raunverulegt notagildi í daglegum rekstri fiskiskipa.

Á heimasíðu OptiTog segir:

„OptiTog leggur áherslu á næstu kynslóð veiðarfæratækni — að færa veiðarfæri inn í 21. öldina. Við mætum brýnni og lítt uppfylltri þörf fyrir hraðar og verulegar umbætur á skilvirkni veiðarfæra. Teymi okkar sameinar áratuga verkfræðireynslu og rannsóknar- og þróunarþekkingu úr veiðarfæraiðnaðinum.“

Rækju smalað með ljósi

Aðferðafræðin felst í því að smala rækju og jafnvel bolfiski inn í troll með ljósi. Halla segir tölfræðilega marktækar niðurstöður sýna að með notkun ljóss við rækjuveiðar sé hægt að lyfta rækju frá botni og inn í botntroll sem stýrt er til að vera í um 30 cm hæð yfir sjávarbotni. Í fyrri prófunum jók rækjutogari á Íslandsmiðum afla um 12–18% með ljósabúnaðinum. Togarinn var við veiðar með tvíburatrolli og var ljósabúnaður í öðru þeirra sem fiskaði, eins og fyrr greinir, 12–18% meira en það troll sem var án ljósabúnaðarins.  

Mikilvægt samstarf við útgerðir

„Við erum í nánu samstarfi við skipstjóra og stjórnendur útgerða. Við nýtum reynslu þeirra úr atvinnuveiðum til að þróa búnað sem hentar þeim og prófum frumgerðir við raunverulegar aðstæður á sjó. Þetta samstarf er mjög mikilvægt fyrir okkur. Skipstjórarnir og stjórnendur útgerðanna þekkja bæði reksturinn og þær áskoranir sem þarf að leysa um borð, og sú þekking nýtist beint við þróun búnaðarins,“ segir Halla.

Hún segir að samstarfið hafi skilað mun meiri reynslu og gögnum úr atvinnuveiðum síðastliðin tvö ár. Gögnin nýtist til að þróa bæði núverandi lausnir og til að þróa nýjan búnað áfram

‍Hér má sjá frétt Fiskifrétta í heild sinni

‍

‍

Share news
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.