30
.
September
2025

Nýsköpunarþing 2025 - Ísland í stóru myndinni

Nýsköpunarsjóðurinn Kría, Rannís, Hugverkastofan og Íslandsstofa bjóða til Nýsköpunarþings 2025 í Grósku 30. október kl. 14:00-15:30. Nýsköpunarverðlaun Íslands 2025 verða veitt á þinginu.

Hvað hefur Ísland fram að leggja í nýsköpun á alþjóðlegum markaði og hvernig geta óvæntar vendingar í alþjóðamálum haft áhrif á sókn íslenskra nýsköpunarfyrirtækja erlendis?

Íslensk nýsköpunarfyrirtæki mæta ýmsum hindrunum á vegferð sinni á erlendum mörkuðum. Að ná fótfestu á nýjum markaði getur reynst flóknara en áætlanir gera ráð fyrir og óvæntar vendingar í alþjóðamálum geta haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar. Hvernig hefur þróun alþjóðamála áhrif á íslensk nýsköpunarfyrirtæki og framtíð þeirra og geta þau með einhverjum hætti varið sig eða jafnvel skapað ný tækifæri? Í þessu samhengi er nærtækt að horft til Bandaríkjanna og þeirra áhrifa sem hækkun innflutningstolla hefur á íslensk nýsköpunarfyrirtæki.  

Í lok þingsins veitir Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Nýsköpunarverðlaun Íslands 2025.

Dagskrá*

14:00 – Setning Nýsköpunarþings

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra

14:10 – Aðalfyrirlesari

Svanhildur Hólm , sendiherra Íslands í Bandaríkjunum

14:40 -  Einkaleyfisumsóknir íslenskra fyrirtækja 2004 - 2024

Borghildur Erlingsdóttir, forstjóriHugverkastofunnar

14:50 – Ísland í stóru myndinni (Pallborð)

Tanya Zarov, aðstoðarforstjóri Alvotech

Erla Skúladóttir – stjórnarformaður Lauf Cycles (Nýsköpunarfyrirtæki ársins 2021)

Sveinn Sölvason – forstjóri og framkvæmdastjóri Embla Medical

Ólafur Karl Sigurðarson, aðstoðarforstjóri Kapp

15:20 - Afhending Nýsköpunarverðlauna Íslands

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra

Fundarstjóri og stjórnandi pallborðs: Freyr Eyjólfsson

Að lokinni dagskrá verður boðið upp á léttar veitingar.

Skráning á Nýsköpunarþing

*Dagskrá er birt með fyrirvara um breytingar

Hlekkur á streymi verður sett á slóðina https://www.rannis.is/frettir/nyskopunarthing-2025-island-i-storu-myndinni

Share news
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.