26
.
October
2026

Nýsköpunarsjóðurinn Kría tók þátt í Oslo Innovation Week

Humble á OIW

Valdimar Halldórsson, fjárfestingarstjóri beinna fjárfestinga hjá Nýsköpunarsjóðnum Kríu, tók þátt í Oslo Innovation Week (OIW) sem fram fór dagana 20.–23. október. Viðburðurinn er vettvangur þar sem nýsköpunarfyrirtæki frá Noregi, fjárfestar og aðrir aðilar í nýsköpunarumhverfinu koma saman til að kynna hugmyndir, mynda tengsl og kanna ný tækifæri til samstarfs. Fulltrúar fjölmargra norrænna sjóða sóttu einnig viðburðinn til að kynna sér áhugaverð fjárfestingartækifæri.

Viðburðurinn er frábrugðinn mörgum öðrum stórum nýsköpunarráðstefnum að því leyti að dagskráin fer fram á fjölmörgum stöðum víðs vegar um borgina, ólíkt til dæmis Slush í Helsinki þar sem dagskráin fer að mestu fram á einum staðþ Á OIW var mikið fjallað um gervigreind og hvernig hún er að breyta landslaginu hjá mörgum fyrirtækjum.

Íslensk nýsköpun í sviðsljósinu

Nokkur íslensk nýsköpunarfyrirtæki fengu tækifæri til að kynna starfsemi sína fyrir fjárfestum á sérstökum viðburði sem Íslandsstofa, Sendiráð Íslands í Noregi og Norsk-íslenska verslunarráðið stóðu fyrir. Þar á meðal voru þrjú félög úr eignasafni Kríu; ArcanaBio, Grænafl og Humble.

Áhersla á tengslamyndun og samstarf

Í tengslum við heimsóknina átti Valdimar einnig fund í Sendiráði Íslands í Osló með Ragnari G. Kristjánssyni sendiherra og Hebu Líf Jónsdóttur viðskiptafulltrúa.

Á fundinum var farið yfir hlutverk Kríu og hvernig sendiráðið vinnur að því að efla viðskipti milli Íslands og Noregs.

‍

Share news
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.