3
.
September
2026

Hefring komst áfram hjá NATO

Karl Birgir Björnsson, framkvæmdastjóri Hefring

Hefring er í hópi 15 félaga sem valin hafa verið til áframhaldandi þróunar innan NATO DIANA-tæknihraðalsins. Meira en 3.600 tillögur bárust hraðlinum og 150 frumkvöðlar tóku þátt á fyrri stigum verkefnisins.

Í tilkynningu frá Hefring sem birtist í Morgunblaðinu segir að með þessum áfanga færist félagið skrefi nær því að sú skipavöktunarlausn sem félagið hefur þróað verði tekin í notkun af flota NATO-ríkjanna.

Þær 15 lausnir sem komust í lokahóp hraðalsins fá allt að 300.000 evra styrk frá Atlantshafsbandalaginu enda hafa prófanir og tilraunir sýnt að um sé að ræða verkefni sem falli vel að þörfum bandalagsins.

Hefring Marine hefur verið í eignasafni Nýsköpunarsjóðsins Kríu frá árinu 2019 og óskum við þeim innilega til hamingju.

Share news
No items found.
Með því að smella á „samþykkja“ gefur þú leyfi fyrir því að vefkökur séu vistaðar í tækinu þínu til þess að bæta virkni vefsíðu og greina notkun vefsíðunnar.