
Aurora Abalone hefur lokið 1,5 milljarða króna hlutafjáraukningu sem markar mikilvægan áfanga í uppbyggingu félagsins. Fjármögnunin mun styðja við stærsta uppbyggingaráfanga í sögu félagsins, en stefnt er að 100 tonna árlegri framleiðslu á abalónum. Abalónur kallast sæeyru á íslensku og teljast til sælkeraafurða og eru eftirsóttar hjá fínustu veitingastöðum heims.
Hlutafjáraukningin var leidd af Dorg, Eyri, ReykVC, Kili fjárfestingarfélagi og Trøndelag Helgeland Invest ásamt einkafjárfestum og Nýsköpunarsjóðnum Kríu.
Aurora Abalone hefur hingað til þróað eldi sitt í Grindavík en með nýju fjármagni verður ráðist í uppbyggingu eldisstöðvar í Auðlindagarði HS Orku við Reykjanesvirkjun. Eldisstöðin verður stærsta abalónueldisstöð Evrópu og byggir upp markaði fyrir afurðir sínar í Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu.
Aurora Abalone hefur notið stuðnings Nýsköpunarsjóðsins Kríu (NSK) í gegnum mótframlagslán sem veitt var árið 2020. Samhliða þessari hlutafjáraukningu verður láninu breytt í hlutafé og mun NSK þar með eignast minnihlut í félaginu.
Með fjármögnuninni skapast tækifæri fyrir Aurora Abalone til að stórauka framleiðslu sína og halda áfram uppbyggingu á alþjóðlegum mörkuðum.