
Líftæknifyrirtækið ArcanaBio hefur tryggt sér alls 85 m.kr. fjárfestingu frá Nýsköpunarsjóðnum Kríu ásamt innlendum og erlendum fjárfestum. Fjármagnið fer í áframhaldandi þróun á nýrri einkaleyfisvarinni tækni félagsins sem greinir prótein í mismunandi lífsýnavökvum með útfjólubláu ljósi og með aðstoð gervigreindar í stað hefðbundinna hvarfefna.
ArcanaBio var stofnað árið 2018 og vinnur að nýrri tækni til að greina mikilvæg heilsufarstengd próteinmerki m.a. úr munnvatni. Tæknin mun gera reglubundnar heilsumælingar umtalsvert hagkvæmari en núverandi aðferðir gera og opnar jafnframt á nýja möguleika á fyrirbyggjandi og einstaklingsbundinni heilsuvernd, betra eftirliti með sjúkdómum og lægri heilbrigðiskostnaði í framtíðinni. ArcanaBio var eitt þeirra félaga sem var valið inn í Frumsjóð 2025 hjá Nýsköpunarsjóðnum Kríu.
Fjármagnið verður m.a nýtt til að þróa ný rannsóknartæki félagsins ásamt rannsóknarverkefnum sem félagið vinnur að með samstarfsaðilum í Evrópu. Hluti af teymi ArcanaBio vinnur einnig við að þróun á nýrri gervigreindartækni sem styðst við skammtaljósfræði sem hjálpar til við að umbreyta og greina flókin litróf mismunandi ljósbylgna sem prótein gefa frá sér.
Í maí síðastliðinn fékk félagið útgefið bandarískt einkaleyfi sem verndar bæði grunntækni og aðferð, en einnig hefur verið sótt um fjögur einkaleyfi til viðbótar í Bandaríkjunum.
Til viðbótar við núverandi fjármögnun hefur félagið fengið öfluga styrki, m.a. frá Tækniþróunarsjóði og í gegnum Eurostars-áætlunina, eða samtals um 95 m.kr ásamt rannsóknarfjármagni og stuðningi frá austurríska ríkinu. Áður hafði félagið tryggt sér um 80 m.kr. frá Novo Nordisk í gegnum BioInnovation Institute í Danmörku.
Kristján Már Gunnarsson, framkvæmdastjóri ArcanaBio:
„Við erum afar þakklát fyrir að Kría og englafjárfestar meðal annars frá Bandaríkjunum komi að félaginu í annað sinn. Þessi fjármögnun ásamt þeim öflugum styrkjum sem við höfum fengið frá bæði Tækniþróunarsjóði og Eurostars gera okkur kleift að ljúka rannsóknum og þróun á nýrri greiningartækni félagsins sem við höfum nýlega tryggt okkur einkaleyfi á ásamt því að styðja við undirbúning á fyrstu hlutafjáraukningu félagsins, sem stefnt er að því að ljúka á næsta ári“.
Hrönn Greipsdóttir, forstjóri Nýsköpunarsjóðsins Kríu:
„ArcanaBio var eitt þeirra félaga sem valið var til fjárfestingar í sérstöku frumstigsfjárfestinga verkefni árið 2023. Frá þeim tíma hefur félagið þróast mikið en ArcanaBio á nú í verðmætu samstarfi við erlendar stofnanir og fyrirtæki auk þess að hafa fengið eftirsótta styrki og viðurkenningar. Með þessari fjármögnun sem Kría tekur þátt í með fleiri fjárfestum, tryggir félagið sér svigrúm til að þróa verkefnið enn frekar á leið sinni á markað. Við hjá sjóðnum erum afar spennt fyrir framtíðinni hjá félaginu“.