Tengiliðsupplýsingar: orn.skulason@nyskopun.is | Sími: 895-5080
Örn Viðar hefur víðtæka reynslu af stjórnun og rekstri fyrirtækja. Hann var framkvæmdastjóri markaðssviðs og aðstoðarforstjóri SÍF samstæðunnar á árunum 2000 – 2004 og leiddi m.a. stefnumótun og skipulagsmál. Þá sat hann í stjórnum nokkurra dótturfyrirtækja SÍF erlendis. Hann var síðan framkvæmdastjóri innlendrar starfsemi SÍF, hjá Iceland Seafood frá 2004 – 2005. Frá árinu 2005 til 2008 var Örn Viðar forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar og fjárfestinga hjá SPRON, en deildin hafði með almenn kaup og sölu fyrirtækja að gera og stýrði stóru fasteignaverkefni í Berlín. Á sama tíma sat Örn í stjórnum nokkurra dótturfyrirtækja SPRON. Frá 2008 til 2017 var Örn framkvæmdastjóri Proact heildverslunar.
Örn Viðar lauk prófi í hagverkfræði frá Tækniháskólanum í Berlín og meistaraprófi í fjármálum fyrirtækja frá Háskólanum í Reykjavík.
Örn situr í stjórnum Cooori, Lauf Cycling, Hefring Marine, 3Z og eTactica ásamt því að vera tengiliður sjóðsins við Dohop og OZ.